Tenglar
Vorum að skella inn nýjum tenglum á síðuna mína.
Fyrri tengillnn er Myndirnar mínar og þar undir er hægt að smella á tengil og þá er farið beint inn á síðuna hennar ÞE á barnalandi. En öllum myndum af okkur systkinunum er dælt þangað inn :) Endilega kíkið á.
Hinn tengillinn er Liverpool bloggið. Nauðsynlegt og flott blogg. En það er undir hjá öðrum bloggsíðum á þessu bloggi mínu.
En það er glæný færsla hérna beint fyrir neðan. Endilega að lesa hana líka og láta heyra í ykkur.
Bestu kv. Þorsteinn Atli.
Blogg
Ég er í leyfi í skólanum. Í gær komu amma Berglind og afi Össi í heimsókn til okkar og ég fór með þeim heim í Þorlákshöfn. Í dag ætla ég svo með afa í vinnuna en hann á rosa flottar gröfur og trukka. Það verður örugglega gaman.
Mamma, Þórdís og kannski pabbi koma svo og ná í mig á morgun laugardag. Held að mömmu og pabba finnist agalega skrítið að hafa ekki drenginn sinn heima en vita að mér finnst agalega gaman.
Þórdís Eva fór að gráta þegar hún átti að fara sofa í gær því hún saknaði brósa síns svo agalega mikið. Ætli hana hafi ekki vantar einhvern til þess að slást við, svona rétt fyrir háttinn :) En okkur finnst gaman að slást í svona gríni en það endar samt ekki oft í gríni, frekar í smá alvöru.
Á sunnudaginn er ég að fara í tvö afmæli sem eru næstum því þrjú afmæli. En annað afmælið er hjá Gunnari og Jóhönnu sem eru vinir mínir og hitt er hjá Elísu Eir frænku minni. Það verður rosa gaman að fara í öll afmælin, það er ég viss um.
Afi Össi spurði mig í gær hvort ég ætlaði ekki að sofa í Arsenal galla um nóttina en afi heldur með Arsenal. Ég hélt nú ekki :) Mér finnst nú að Arsenal vörurnar ættu að vera á einhverjum afslætti þar sem þeir eru dottnir út úr keppni, hehe :) Sorry, afi minn.
En ekki meira í bili.
Að vísu eru komnar inn margar nýjar myndir inn á myndasíðu okkar Þórdísar Evu inn á barnalandi. www.barnaland.is/barn/3320 Og lykilorðið er nafnið á deildinni hennar Þórdísar Evu. Endilega að senda mömmu póst ef þið vitið ekki nafnið á deildinni hennar en netfangið er elsalara@brak.is
Bæjó, Jón Spæjó eða bara Þorsteinn Atli.
Gaman
Ég fór í fermingarveislu og lék mér við krakkana þar. Það var svaka stuð og einn strákurinn tosaði svo fast í skyrtuna mína og tölurnar opnuðust að framan og ég var eiginlega þá ber að ofan. Vúps.
Frikrik gisti hjá mér á föstudaginn. Við vorum að leika okkur í tölvunni og horfa á sjónvarpið. Við vorum saman alveg þar til við fórum í afmæli til Björns Inga sem er með okkur í bekk. Ég var lengi í afmælinu og systir Björns skutlaði mér heim um kvöldmatinn.
Þegar ég var ný komin heim á laugardaginn þá kom Matti til mín og við fengum að gista saman. Við og Þórdís horfðum saman á Íþróttahetjuna og skemmtum okkur mjög vel.
Já og í gær var fótboltaleikur í Ensku og LIVERPOOL vann Everton. Jaba daba dú. Gaman, gaman. Halda vonandi áfram að vinna.
Kveðja, Þorsteinn Atli.
Ritarinn ekki ađ standa sig
Jæja, ég held það verði barasta að reka ritarann minn. Hún nennir aldrei að blogga fyrir mig en kannski tekur hún sig á, við sjáum bara til.
Ég fór í ferðalag um daginn á Hornafjörð. Fór og heimsótti ömmu og afa á Hornafirði. Það var gaman. Hitti helling af fólki og lék mér við krakkana.
Við fórum á jöklasýningu og það var meiriháttar, sá plat íshelli, uppstoppað hreindýr og alls konar jökladót. Við fjölskyldan urðum alveg sjúk í að komast upp á jökul í ferð, sérstaklega mamma. Held að hún eigi eftir að skella sér við tækifæri.
Sigga frænka mín kom með okkur austur og við vorum mjög góð að leika okkur saman.
Á leiðinni heim stoppuðum við á Selfossi og versluðum okkur kanínu. Hún heitir Aníta Anna. ÞE vildi láta hana heita Anítu en ég vildi láta hana heita Önnu, þannig að Aníta Anna heitir hún. Óli kisan okkar vill borða kanínuna og reyndi það í fyrradag. En hann hætti við það þegar hann var skammaður.
Um páskana fékk ég páskaegg númer 5 og var ekki lengi að torga því. Stefán frændi minn var hjá okkur og það var gaman að hafa hann. Hann er svo duglegur að hjálpa mér í hinum og þessum tölvuleikjum.
Núna eru fótboltaæfingar byrjaðar á fullu og ég komin á æfingar eftir frí. Það er gaman á fótboltaæfingum og við erum á fullu að undirbúa okkur undir Shell mótið sem við förum á í lok júní. Það verður geggjað eða það held ég. Mótið er í Vestmannaeyjum.
Annars vil ég ekkert minnast á ensku eftir sorgarleikinn um síðustu helgi. Það var sárt. Spurning hvernig fer með leikinn um næstu helgi. Liverpool - Everton. Ég og pabbi verðum að taka leikinn upp því við erum að fara í fermingarveislu.
Ekki meira í bili. Þorsteinn Atli.
Gaman í dag :)
Í dag fór ég í skólann og þar var alveg ágætt. Allavega skemmtilegra en undanfarna daga
Var að leika mér við vini mína í 5. bekk sem heita Brynjar, Böðvar og Birgir.
Eftir skóla í dag fórum við svo heim til mín í Eikarskóga og við vorum mjög duglegir að vera heima því mamma, pabbi og Þórdís voru ekki heima. Við vorum úti að leika okkur, fengum okkur að borða og fórum aðeins í tölvuna ![]()
Böðvar er að biðja mig um að koma til Keflavíkur um helgina en hann er að keppa í körfu. Pabbi hans var einu sinni í körfubolta, meira að segja í landsliðinu. Hann langar svo að ég komi að horfa á sig keppa en mamma segir að við séum ekki að fara til Keflavíkur um helgina. Þá spurði Böðvar mig hvort ég gæti ekki tekið leigubíl
eða hvort að mamma hans myndi skutla mér
Mamma segir nei og aftur nei. Skil ekkert í því en svona eru þessar mömmur :)
Kveðja, ÞA.
Oooooooooo
Svo varð Þórdís Eva snemma þreytt og fór að sofa og ég og mamma horfðum á söngvakeppnina. Við héldum með Hey hey hey laginu eða hvað það nú heitir og vorum smá fúl að það komst ekki áfram. Því mér fannst svo flott að einn gaurinn þar var kennari.
Hann var líka svolítið fyndinn þessi Dr. Spock en við vildum ekki að hann færi áfram. En fjarstýrði guli gúmmíhanskinn var cool.
Núna er ég að bíða eftir pabba. Hann er á leiðinni heim úr RVK. Hann er búin að vera vinna svo mikið.
Á morgun er svo fótboltaæfing og kannski ætla ég í sund með bekkjarfélögum mínum þegar æfingin er búin.
Kveðja, Þorsteinn Atli.
Langt síđan síđast.
Eftir mótið fór ég í sund með bekkjarfélögum mínum og fannst svo gaman. Var dálítið lengi og skemmti mér vel
Núna er loksins komið helgarfrí og ég er eiginlega svolítið þreyttur. Er að spila Simpson leikinn í PS3 og hann hefur flotta graffík. Þórdís Eva systir mín er líka í tölvunni og við skemmtum okkur vel saman
Um helgina ætla ég vera heima. Pabbi er að vinna og svo ætlum við að hafa partí á morgun þegar söngvakeppnin verður. Það er svo gaman.
Jæja ritarinn minn, hún mamma er að fara elda matinn og má ekki vera að þessu lengur. En endilega kommentið á síðuna mína. Það er nefnilega ekki gaman ef enginn gestur kemur á síðuna
Bæ Þorsteinn Atli.
Loksins í skólann :)
En það eru næstum því allir búnir að vera veikir heima, nema kisi og pabbi, hehe :) Mamma fór meira að segja á spítala en var sem betur fer ekki lengi.
En í dag voru Liverpool og Chelsea að keppa og leikurinn fór 0 - 0. Ótrúlega fúlt því Liverpool átti að vinna eða það finnst okkur öllum hérna í Eik 4.
En núna eru komnar smá fréttir af mér og ég hlakka til þess að komast í skólann og hitta vini mína þar :) Sjáumst strákar :)
Bestu kveðjur, ÞA.
Veikinda blogg
Ég, mamma og Þórdís erum veik og erum fúl yfir því. Nennum ekki að vera lasin og úff. Þórdís er búin að vera lasin í 8 daga en ég bara í einn. Vonandi verð ég ekki lasin svona lengi því mig langar að keppa við KR á sunnudaginn með liðinu mínu.
Ekki meira í dag.
Kv. Þorsteinn Atli.
Ćđislega skemmtileg helgi.
Um helgina hefur verið nóg um að vera.
Í gær var haldið upp á afmælið mitt og Þórdísar Evu, loksins en það er næstum því kominn mánuður frá því ég átti afmæli. En það komu margir gestir og ég skemmti mér rosalega vel.
Andri vinur minn úr RVK kom og Marteinn vinur minn fékk að gista. Við vorum smá púkar þegar við áttum að fara sofa en við sofnuðum svo agalega þreyttir.
Ég fékk svakalega flotta afmælisköku, það var Liverpool kaka sem mamma pantaði. Þórdís Eva fékk Dóru köku.
Á morgun er svo skóli og svo líka fótboltaæfing. Hlakka mikið til.
Heyrumst.
ÞA gaur :)

